8.9.2006 | 18:43
Mmmmm..
Hef aðeins þrennt að segja...litli maðurinn sofnaður, gott sjónvarp og rauðvínsglas...mmmm...good times..
P.s klipparinn reddaði toppnum og ég er orðin svaka foxy..
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.9.2006 | 14:58
Hálfgert ógeð..
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
7.9.2006 | 13:28
Frekar blue..
Æi er frekar blue i augnablikinu...Ísland tapaði í gær, ég er að fyllast af kvefi og svo er ég ein heima alveg fram á Sunnudag...and to be honest with you þá leiðist mér pínu, karlinn er búinn að vera eitthvað svo mikið í burtu undanfarið að mér er farið að líða eins og einstæðri..hehehe...hins vegar verð ég að líta á björtu hliðarnar..Júlíus svaf alveg með afburðum vel í nótt..og það er saga til næsta bæjar..
Annars verður nóg að gerast um helgina..ég er að fara að gæsa vinkonu mína á Laugardaginn í Aarhus og svo á Sunnudaginn er smá æfingabúðir í badmintoninu þannig að mér ætti ekki að leiðast um helgina..
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.9.2006 | 09:08
Áfram Ísland...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.9.2006 | 12:37
Mömmugrúppa..
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
2.9.2006 | 21:39
Laugardagur..
til lukku..mikið rosalega er ég mikill aðdáandi laugardaga..og þó svo að allir dagar séu í rauninni eins hjá mér þar sem að ég er í orlofi þá er eitthvað alveg spes við laugardaga..allavegana byrjaði daginn með því að senda karlinn af stað á sólarhrings djamm..eða svo gott sem..hann er einhversstaðar í Árósum að staupa sig með vinum..steggjapartý..ég geri bara ráð fyrir því að þeir hegði sér eins og herramenn...svo þegar búið var að losa sig við karlinn fórum ég og Júlíus minn í ungbarnasund og jidúddamía hvað það var gaman...hann var alveg að fíla sundið elsku gullið mitt..buslaði og spriklaði og vildi nærri því bara synda sjálfur..mér er strax farið að hlakka til næsta tíma...svoooo þegar að sundtímanum var lokið fórum ég og Júlíus hrein og nýstrokin í bæinn...og mamman nældi sér í nýjar Diesel buxur og nýjan vetrajakka..smá mórall í gangi akkúrat núna..en það gengur trúlega fljótt yfir...nú þegar að verslunarleiðangrinum var lokið brunuðum við mæðginin til Horsens í vöfflukaffi til Eydísar og fjölskyldu...það var mikið gaman að hitta þau öll og ofurhundinn hana Heru sem mér sýnist á öllu er kvenútgáfan af honum Austin..lífleg og skemmtileg..
Svooo til að slá botn í annars ljómandi dag..datt mér í hug að líta á netið(surprise surprise) og viti menn fann ég ekki þessa líka hræbillegu miða beinustu leið til nafla alheimsins, já akkúrat Akureyrar. Þar sem grasið er aðeins grænna, hafið er aðeins blárra og snjórinn aðeins hvitari..neibb smá djók..en til að gera langa sögu stutta skellti ég mér barasta á þá og ég og Júlíus minn verðum á eyrinni góðu frá 9. til 19. nóvember þannig að allir sem vettlingi geta valdið láta auðvitað leið sýna liggja þangað akkúrat þá...til að sjá okkur auðvitað..
Þannig að svona "to sum it up" þá fer ég einum gallabuxum, vetrarjakka og flugmiða ríkari í rúmið í kvöld....jessör..laugardagar svíkja sjaldan...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
1.9.2006 | 11:44
Þreytt..
þessa dagana..litla gullið mitt hefur verið óþægur á nóttunni og vaknar allt of oft..og þar sem að ég sé um næturvaktina er ég býsna þreytt...svo er ég með einhverja vöðvabólgu í hálsinum og búin að vera með spennuhöfuðverk í 3 daga..eyminginn ég..jæja nóg af væli..
Mamma og pabbi héldu heim á leið fyrir viku..takk fyrir komuna það var virkilega gaman að fá ykkur í heimsókn! Núna er ég að skoða beint flug til Akueyrar í Nóvember..verð aðeins að kíkja á eyrina með reglulegur millibili...
Júlíus er alltaf jafn duglegur(nema með svefn á nóttinni)..rúllandi um öll gólf, hjalandi og það bætast alltaf ný hljóð við. Það er svo spennandi að fylgjast með hvað hann þroskast hratt...og tíminn líður svo hratt..
Helgarplönin eru:
-Thibaut er í burtu allann daginn á morgunn, það á að steggja einn af félögunum...(ég spyr að leikslokum)
-Ungbarnasund í fyrramálið..fyrsti tímínn á morgun..hlakka mikið
-Jafnvel á döfunni að renna til Horsens á morgun og heimsækja Dísu frænku mína sem er nýflutt til Danaveldis..sjáum til hvernig heilsan er á morgun..
-Brynja, Elli og krakkarnir ætla að kíkja í kaffí á sunnudaginn...verðum gaman að sjá gengið..
Thats all folks....
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.8.2006 | 19:40
Tíminn líður..
og líður og Júlíus Aron stækkar og stækkar...og er alltaf að verða duglegri og duglegri...hann er fyrir löngu farin að rúlla sér af maganum á bakið og frá bakinu á magann..og maður er alltaf að taka eftir einhverju nýju hjá honum..og svo er hann engin smá smíði..heil 9.1 kg...jamm og jæja..bara gott mál..annars er allt í lukkunnar velstandi hér á bæ..Mamma og pabbi eru í heimsókn þessa dagana..og núna á þriðjudaginn ætla ég og Júlíus með þeim til Malmö og sjá nýju íbúðina hennar Önnu systur..hlakka mikið til...Skrapp til Þýskalands í gær með gamla settið (ég verð auðvitað hengd fyrir að kalla þau það..haha), keypti fullt af öli og gosi..það verður ekkert mál að drekka gosið..það verður öllu verra með allt ölið..þannig að gestir óskast..það verður alveg pottþétt kalt öl á boðstólnum..Og það eru komnar nýjar myndir á barnalandi..
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
13.8.2006 | 14:55
Mætt til leiks..
Jæja þá, nenni ómögulega að vera í fílu lengur..þakka þeim fjórum sem sendu mér lítið komment..djís..ég á víst enga vini..en hvað um það ég tala bara við sjálfan mig. Helgin alveg að líða..er á fullu að gera fínt hjá mér..mamma og pabbi eru á leiðinni og ekki gengur að húsið líti út eins og sprengja hafi fallið á svæðið. Annars er ég ansi þreytt..við tókum þátt í 24 tíma hlaupi þessa helgina..og nei við hlupum ekki stanslaust allann þann tíma..við vorum í 19 manna liði og var ferðunum bróðurlega deilt á milli þátttakendanna. Ég hljóp einu sinni í gær og einu sinni í dag..og vegalengdin var 5.7 km...engin maraþon vegalengd en alveg nóg þegar maður er nýbúinn að kreista út úr sér eitt stykki barni fyrir fjórum og hálfum mánuði síðan. Þetta var alveg mega skemmtilegt og góður andi í liðinu sem samastóð af mestu af badmintonklúbbnum plús viðhengi...og til að gera ennþá meiri "hygge" byrjaði að mígrigna í gær og ég meina mígrigna..þannig að svæðið varð eins og góð íslensk útihátið..aurbleyta, skítur og drulla eins langt og augað eygði...og því var ekkert annað að gera en að draga fram gúmmístígvélin og "lobbuna". Það var grillað, skrafað og hlaupið...og við urðum nr. 16 af c.a. 90 liðum og vorum "by the way" nr. 48 í fyrra þannig að bætingin er svakaleg..það er spurning um að blanda sér í topp 10 á næsta ári..hehehe...Júlíus Aron fylgdi auðvitað með og verður hann auðvitað neyddur til þátttöku um leið og hann getur sjáfur gengið...!!!
Annars í öðrum og ekki alls óskyldum fréttum er að ég er byrjuð að spila badminton aftur eftir hlé...og það er alltaf jafn ansi skemmtilegt..búin að mæta á þrjár æfingar so far...og er búin að vera með strengi eftir þær allar...sem er kannski minna skemmtilegt..
Það er sossem ekkert annað héðan að frétta akkúrat í augnablikinu...er að vonast eftir betra veðri..komin með leið á rigningunni..því "when it rains it pores" í augnablikinu og það er varla hundi út siginandi..bókstaflega...
P.s. sá svakalega skemmtilega mynd á föstudaginn...Keeping MUM..svartur enskur húmör eins og hann gerist bestur..mæli með henni..hló næstum alla myndina..
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.8.2006 | 22:08
Krísa..
Halló folkens..er í minniháttar krísu í augnablikinu...og er það útaf kommentaleysinu á þessarri síðu..hef ég velt eftirfarandi möguleikum fyrir mér.
a)Ég á enga vini lengur sem hafa áhuga á að lesa röflið í mér og þess þá heldur að skrifa mér skilaboð endrum og eins.
b)Ég á vini en það er enginn sem nennir að skrifa komment.
c)Það er enginn sem les þessa blessuðu síðu og því er mér hollara að hætta að blogga og eyða tímanum í eitthvað annað.
d)Það eru allir í sumarfríi og tóku tölvuna ekki með...
Vona að einhverju góðhjartaðir reyni að svara þessarri miklu gátu fyrir mig...písát..
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)