Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, september 2006

Einn góður..

Skrapp með Júlíus í sund áðan..sem svosem ekki í frásögurfærandi nema fyrir það eitt að ég heyrði líka þennan góða ljóskubrandara...og þar sem að ég tilheyri þessum hópi..þe. ljóskna þá legg ég ævinlega sérstaklega vel við hlustir þegar slíkir brandarar eru á ferðinni...

Ljóskan fór til læknissins því hún átti við leiðindavandamál að stríða..henni verkjaði út um allt...Þegar hún kom til læknisins sagði hún: "læknir mér verkjar út um allt og ég get ekki komið við mig án þess að því fylgji skerandi sársauki..sjáðu bara".  Ljóskan potaði í hnéð á sér og hljóðaði af sársauka, svo kom hún við öxlina á sér, magann og lærið og í hvert einasta skipti sem hún ýtti á líkamshlutana öskraði hún af sársauka...Læknirinn skoðaði ljóskuna hátt og lágt og eftir gaumgæfa skoðun sagði læknirinn: "Ég hef góðar fréttir.... það er ekkert að hnénu, öxlinni, maganum eða lærinu". Það eru góðar fréttir sagði ljóskan..Hins vegar sagði læknirinn þá ertu puttabrotinn...HAHAHAHAHA..hviss bang..

Vildi bara deila þessum skemmtilega brandara með ykkur...

 


Milli steins og sleggju..

Það er alltaf jafn yndislegt að taka þátt í brúðkaupi..veðrið um helgina skemmdi heldur á engan hátt  fyrir veisluhöldunum..sól og yfir tuttugu gráður..brúðurin gullfalleg..brúðguminn myndarlegur og svona til að toppa stemminguna flugu tvær flugvélar frá flugskólanum yfir kirkjuna í heiðurskyni þegar brúðhjónin gengur út..á meðan kollegarnir(by the way allir í búning)stóðu heiðursvörð úti..alveg hreint ævintýralegt..gott partý á eftir og Júlíus stóð sig eins og hetja og var á engan hátt til trafala..enda með eindæmum gott barn(hehehe).  Allir voru vel þreyttir á sunnudaginn..þó sérstaklega foreldrarnir þar sem að við fórum seint að sofa og snemma á fætur.  Við drifum okkur þó í afmælispartý til Maríu Rúnar í Aarhus á sunnudags seinnipartinn..enda látum við okkur ekki vanta í gott partý..góðar veitingar þar á ferðinni og gaman að sjá allt gengið..Takk fyrir okkur og vonandi sjáumst við sem fyrst aftur..

Annars er ekki mikið á döfunni þessa vikuna og er það vel..næsta helgi er fyrsta helgin í öllum september þar sem við erum ekki að fara að gera eitthvað..þannig að það verður slappað af..og farið í ungbarnasund..og jafnvel opnaður Haribo poki eða tveir..

 


c_documents_and_settings_flsk-13_dokumenter_billeder_20060925081334_50.jpg

Enginn lognmolla hér..

frekar en fyrri daginn...Skrapp í nálastunguna á mánudaginn, er nefnilega komin með vöðvabólgu af því að bera elskuna mína allan daginn..og mikið djöf. er svona nálastunga sársaukafull..djíís..Svo var mömmuhittingur í gær..alltaf huggó..Sú sem við heimsóttum í þetta skiptið er að gera upp gamalt hús..svakalega flott hjá henni, samt alveg hellingur eftir..Ég hef bara alls ekki þolinmæði í svona verkefni..Planið í dag er að skreppa í sund..ég og Júlíus erum orðnir fastagestir í lauginni..og drengurinn er að fíla þetta í botn..svo er stóra málið þessa vikuna..brúðkaup á laugardaginn..algjört maraþon bryllup..byrjar klukkan eitt eftir hádegi og stendur langt fram á nótt..veislan verður c.a. í klukkutíma fjarlægð frá Viborg þannig að við erum búin að panta okkur gistingu á staðnum..þetta verður semsagt lítil helgarferð..hlakka til að sjá brúðarparið..og auðvitað brúðarkjólinn...Hér er búið að redda sér kjóli, fíni búningurinn hans Tibba er klár...og ég er búin að dressa Júlíus upp...þannig að litla fjölskyldan er barasta að verða klár í slaginn...og ég gleymi auðvitað Austin..hann verður hjá Sillu vinkonu sinni...Svo til að slá botn í helgina brunum við til Aarhus á sunnudaginn..María Rún prinsessa heldur upp á tveggja ára daginn..við látum okkur ekki vanta í fjörið..frekar en fyrri daginn..


Hér er

andlegur undirbúningur í gangi..fyrsti leikur tímabilsins að hefjast eftir þrjá tíma..pastað komið í magann, búið að mjólka út fyrir kvöldið..allt að verða klárt og ég er að sofna..djís hér er þreytt móðir á ferðinni..gengur samt ekkert að leggja sig núna..ég á það til að verða svo svakalega "grumpy" eins og maður segi á góðri íslensku þegar ég vakna aftur...mér var hreinlega bannað að fá mér kríu eftir hádegi á tímabili vegna þess að ég varð svo leiðinleg á eftir..hahaha..betra að halda sér vakandi fram að leik..

Thank god it's friday..

Nei segi bara svona..allavegana er helgin framundan..og það er nú gaman..Í fyrramálið mætum við fjölskyldan í ungbarnasund..og klukkan kortér i tvö fer húsfreyjan í badmintongallan og massar eins og einn leik á móti Risskov sem er lið frá Aarhus..þetta er fyrstu leikur þannig að það er svaka stemming í liðinu..ég er reyndar ansi þreytt í dag..því það má með sanni segja að ég sé komin á fullt..fór á æfingu á sunnudaginn, þriðjudaginn, fimmtudaginn og svo er leikur á morgun..er ansi aum í skrokknum en þetta gengur bara fínt og ég er með nóga mjólk þannig að þetta er bara súper..Ég spila einliða og tvíiða á morgun..og ekki nóg með að ég spili á morgun er planið að borða með liðinu á eftir og jafnvel kíkja við í partýi þar á eftir...þ.e. ef Júlíus Aron verður góður og sefur eins og hann er vanur...það verður sko gaman að kíkja aðeins út...

P.s. Góða helgi alle sammen...og Brynja ég veit þú MASSAR þinn leik á morgun..Svalur


Einn svona laufléttur

NÁMSKEIÐ FYRIR KARLA!!! 

ALLIR VELKOMNIR
AÐEINS FYRIR KARLA


Athugasemd: námskeiðin eru flókin þannig að aðeins átta geta sótt
hvert námskeið

Hvert námskeið tekur tvo daga og efnið er eftirfarandi:


FYRRI DAGUR


HVERNIG Á AÐ FYLLA ÍSMOLAMÓT
 ? 
Skref fyrir skref með
  glærusýningu

KLÓSETTRÚLLUR VAXA ÞÆR Á KLÓSETTRÚLLUHALDARANUM?
Hringborðsumræður

MUNURINN Á RUSLAFÖTUM OG GÓLFI

Æfingar með körfuefni (teikningar og módel)


DISKAR OG HNÍFAPÖR: FER ÞETTA
SJÁLFKRAFA Í VASKINN EÐA UPPÞVOTTAVÉLINA?

Pallborðsumræður nokkrir sérfræðingar
 

AÐ TAPA GETUNNI

Að missa fjarstýringuna til makans Stuðningshópar


LÆRA AÐ FINNA HLUTI

Byrja að leita á réttum stöðum í stað þess að snúa húsinu við gargandi Opin umræða


SEINNI DAGUR


TÓMAR MJÓLKURFERNUR; EIGA ÞÆR
AÐ VERA Í ÍSSKÁPNUM EÐA Í RUSLINU?

Hópvinna og
 hlutverkaleikir

HEILSUVAKT; ÞAÐ ER EKKI HÆTTULEGT
HEILSUNNI AÐ GEFA HENNI BLÓM

PowerPoint kynning


SANNIR KARLMENN SPYRJA TIL VEGAR ÞEGAR ÞEIR VILLAST
  
Sönn saga frá manninum sem spurði til vegar


ER ERFÐAFRÆÐILEGA ÓMÖGULEGT
AÐ SITJA ÞEGJANDI MEÐAN HÚN LEGGUR BÍL?

Ökuhermir


AÐ BÚA MEÐ FULLORÐNUM; GRUNDVALLARMUNUR Á ÞVÍ AÐ BÚA MEÐ MÖMMU ÞINNI
  OG MAKA Fyrirlestur og hlutverkaleikir

HVERNIG Á AÐ FARA MEÐ EIGINKONUNNI Í BÚÐIR
Slökunaræfingar,
hugleiðsla og öndunartækni


AÐ MUNA MIKILVÆGAR DAGSETNINGAR
OG AÐ HRINGJA ÞEGAR ÞÉR SEINKAR

Komdu með dagatalið þitt í tímann


AÐ LÆRA AÐ LIFA MEÐ ÞVÍ
AÐ HAFA ALLTAF RANGT FYRIR SÉR

Einstaklingsráðgjöf og samtöl

Leynist lítið sannleikskorn hérna..hmm..ekki gott að segja..

Góðar stundir út um allar jarðir....


Hva?

Ég þurfti nú bara að líta á dagatalið í dag til þess að vera alveg viss um að það væri ekki komið sumar aftur..búið að vera algjört snilldar veður sl. daga..sól og hitinn skreið í 25 gráður í dag..veðrið hefur auðvitað verið nýtt til útiveru..skruppum í smá lautarferð í gær...Thibaut átti frí í gær út á helgina sem var ósköp huggulegt enda búin að vera mikið fjarverandi undanfarið..ég fór svo í það að reyta grasið og illgresið hérna í innkeyrslunni..gvöööð minn hvað það var mikið gras..og þvílík hreinsun að losna við þetta..ég er náttúrulega svakalega montinn með mig að hafa drifið í þessu..enda ekki annað hægt í góðviðrinu..svo er það bara badminton í kvöld..fyrsti leikur er á laugardaginn svo að það er betra að æfa sig aðeins áður..mér hlakkar bara svolítið til verð ég að viðurkenna..Áfram Viborg..


Dauðuppgefin..

eftir annars ágætan dag..var í Arhus að gæsa vinkonu mína..reyndar var ég ósköp róleg í tíðinni þar sem að ég tók litla manninn minn með...Dagurinn byrjaði snemma hérna á Lærkevej 10, allir voru komnir á fætur um klukkan sjö í morgun til þess að geta náð lestinni 8.30...hundinum var fleygt út í örskammastund til þess að sinna brýnustu þörfum og svo röltum við á lestarstöðina..Á lestarstöðinni hittum við svo Charlotte og Freja sem fóru með okkur til Árósa..vorum komnar í hús um kl. tíu..mátulega á undan brúðinni..svo var snæddur brunch..farið í Súmóglímu í svona risa súmóbúningum..svakalega fyndið, var alveg að míga á mig úr hlátri..maður kútveltist þarna um á gólfinu alveg hreint eins strandaður hvalur..gaman gaman..Júlíus var svaka duglegur, sat bara og horfði á mömmu sína fíflast..síðan fékk brúðurin tækifæri til þess að tæma sælgætisbúð á einni mínútu..þannig að það var nóg nammi restina af deginum..nú þegar að þessu var lokið var sest niður út í sólinn og snæddur síðbúinn hádegisverður..það skall á þessi líka brakandi blíða seinnipartinn í dag..eftir hádegisverðinn var svo haldið með brúðinna góðu í upptökustúdíó þar sem hún fékk að syngja inn þrjú lög á geisladisk...og ó mæ ég get með sanni sagt að hún gæti ekki haldið lagi ef líf hennar væri í veði..hahaha..bara skemmtilegt..þegar þessu öllu var lokið var komin tími fyrir mig, Charlotte og smáfólkið að fara heim..klukkan að verða fimm síðdegis og þetta búið að vera langur dagur fyrir alla..við kvöddum og þökkuðum fyrir okkur og óskuðu hinum góðrar skemmtunar þar sem hópurinn ætlaði auðvitað að kanna næturlífið í Aarhus...

Mmmmm..

Hef aðeins þrennt að segja...litli maðurinn sofnaður, gott sjónvarp og rauðvínsglas...mmmm...good times..

P.s klipparinn reddaði toppnum og ég er orðin svaka foxy..


Hálfgert ógeð..

Er komin með eitthvað æði fyrir súkkulaði fylltu með piaparmyntu (og nei ég er ekki ólett aftir)..mér finnst þetta svo asskoti gott bara..allavegana er núna búin með tvö súkkulaði stykki og líðanin er eftir atvikum slæm..liggur ansi þungt í maganum svona sjokkólaði..ég legg auðvitað skuldinni á að mér leiðist og á ó svo bágt..hehehe..skrapp annars í sund með litla manninn í morgun og við fórum alveg óvart með í ungabarnasundstíma..þetta er svona tími sem maður getur bara mætt í ef maður vill..við vorum auðvitað hæst ánægð með þetta mæðginin..annars ákvað ég að breyta aðeins til og klippa á mig topp..til að gera langa sögu stutta náði ég að kreista út akút tíma hjá klipparanum..fer klukkan kortér yfir sex..vona að það sé hægt að redda þessu...Jæææææks...

Næsta síða »

Höfundur

Ólöf Guðrún Ólafsdóttir
Ólöf  Guðrún Ólafsdóttir
Akureyringur í Viborg

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband