29.11.2006 | 12:53
Betra seint..
Hef ekki verið sú duglegasta við að skrifa...og hef ég góða afsökun. Þannig er mál með vexti að húsbóndinn var með farartölvu í láni frá vinnunni sem hann því miður varð að skila þar sem hann er komin í nýja stöðu...bévítans vesen segi ég bara þar sem ég var orðin ansi góðu von og það var orðið hreint quality time að liggja með tölvuna á maganum og skoða undraheim netsins þegar dagur var að kveldi kominn og einkasonurinn svifinn á vits við ævintýri í draumaheimi..við eigum auðvitað alveg hreint ágæta tölvu sjálf, hún er bara niðri í kjallara á skrifborðinu þar...og þegar það er dimmt úti og kalt á ég erfitt með að drusla mér í kjallarann í tölvuræksnið og skrifa línur...það er einhvern veginn meira "appeling" að sitja á mjúkum sófanum fyrir framan arinneldinn og gefa skáldagáfunni lausan tauminn...En ekki örvænta kæru lesendur...fartalva er ansi hátt á óskalistanum og verður án efa bætt úr ástandinu og já ég segi og meina ástandinu fljótt...enda ekki hægt að senda húsfreyjuna í náttsloppnum með rúllurnar í hárinu niður í kjallarann til þess að nýta sér tölvutæknina...Nei ég segi bara sonna..
Kv. Húsfreyjan í tölvuvandræðum....eða ekki alveg vandræðum bara pínu...æi .þið vitið hvað ég meina..
Athugasemdir
Oh hvað ég skil þig vel með að nenna ekki í kjallarann að skrifa svo þú verður að bæta úr og fá þér eitt stykki.
En gaman að þú sért komin í Danaveldi aftur hélt bara að þú ætlaðir aldrei að koma vínkona. Verðum að fara hittast og þegar þú kemur í verslunarleiðangur þá er heitt á könnunni hérna.
kv. Brynja.
Brynja Kolbrún (IP-tala skráð) 30.11.2006 kl. 08:59
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.