Leita í fréttum mbl.is

Haust

Já haustið er svei mér þá komið hingað til okkar "dana".  Hefur verið sudda veður með rigningu og roki alla helgina og tréin fella laufin. Ég þakka gvuði fyrir að við feldum stóra brikitréð okkar í fyrravetur..en það var ferlegt á haustin og bílinn sem og innkeyrslan og í raun allt lauslegt og fast var alþakið laufum.  Ég geri ráð fyrir því að nágrannar okkar séu kátir þar sem að tréskömmin var ekkert að skilja aðra útundan þegar að kom að útdeilingu laufblaða.  Annars finnst mér haustin ósköp notalegur árstími.  Litbrigin með eindæmum falleg og hvað er betra en að hjúfra sig undir teppi á kvöldin með kertljós og jafnvel eld i arninum á meðan regnið lemur húsið á utan.  Nú ef maður verður fyrir því ólani að þurfa að fara út úr húsi er ekkert annað að gera en að teygja sig í regnjakkann og stígvélin og Voila...vandamálið leyst..Sjáum til hvort að ég verði jafn rómantísk og jákvæð út í haustið í fyrramálið þegar ég þarf að hjóla í vinnuna....

Annars er róleg helgi liðin hjá...gærdagurinn fór að mestu í afslöppun þar sem að veðurguðirnir buðu ekki upp á sérstakt útivistar veður.  Við fengum litla vinkonu Júlíusar í heimsókn í gærdag og þótti það ekki slæmt.  Í dag lá leið okkar til Aarhus þar sem að STÓr vinkona okkar hún María Rún hélt upp á þriggja ára afmælið í dag.  Alltaf gaman að heimsækja hana og hennar fjölskyldu og Gvuð minn góður þvílíkar kræsingar.  Við fórum sko ekki svöng heim og segjum bara "takk fyrir okkur" og vonandi sjáumst við sem fyrst.  Júlíus var reyndar hálf slappur þegar við komum heim þannig að það verður óvíst með morgundaginn....vonandi hristir hann þetta af  sér sem fyrst en nú er að verða nóg komið af hori í nos og slappleika hér á bæ....

Ég segi bara gleðilega vinnuviku til allra sem bíða í ofvæni eftir því að mæta í vinnuna í fyrramálið (NOT)......


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Alltaf gaman að fá ykkur í heimsókn og allt of langt síðan við hittumst síðast.  Svo við verðum að hittast sem fyrst aftur það er ekki spurning við fáum okkur bíltúr til Viborgar.  Bara góða vinnuviku og við verðum í sambandi;)

kv. frá stórfjölskyldunni í Ega

Brynja og co (IP-tala skráð) 30.9.2007 kl. 19:22

2 identicon

hæ hæ! velkomin heim úr fríinu. Vonandi er frændi orðinn hress  ég sendi þér email fljótlega til að fá lykilorðið.

knús og kossar úr borginni Eydís

Dísin (IP-tala skráð) 2.10.2007 kl. 23:00

3 identicon

Sæl frænka, við verðum líka að segja frá því þegar veðrið er gott eins og það hefur nú verið undanfarið. Við erum jú einu sinni að norðan! Annars allt gott að frétta frá Horsens og bestu kveðjur til Viborgar. Helgi Örn.

Helg Örn (IP-tala skráð) 11.10.2007 kl. 22:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ólöf Guðrún Ólafsdóttir
Ólöf  Guðrún Ólafsdóttir
Akureyringur í Viborg

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband