6.11.2006 | 11:35
Þá..
er Íslandsförin alveg að bresta á og til marks um það keyrir þvottavélin "non stop" hér á bæ. Ekki er laust við að spenningur sé komin í strákinn enda ákvað hann um helgina að byrja að æfa sig á íslenskunni og kom með líka þetta fína "MAMM" og síðar fór að fylgja lítið "a" með svona í endann..kemur þó ekki alltaf..hmmm..tilviljun eða er drengurinn búin að segja fyrsta orðið..ég leyfi mér að halda því síðara fram enda með eindæmum stolt af honum fyrir að segja "MAMM" og að nota íslensku útgáfuna..en allir vita frá grunnskólaárunum að mamma er mor á danska málinu...Jessöríbob mikill skýrleiki í drengum sem nú btw. getur reist sig upp við sjónvarpsskápinn..drengurinn verður altalandi og hlaupandi um allt áður en hann nær að verða eins árs...greinilegt að foreldrarnir eru góð eintök til undaneldis..
Annars sá ég spaustofuna frá því á Laugardag og skemmti mér vel yfir henni..bara nokkuð gott hjá þeim..og Örn náttúrulega alveg drepfyndinn sem danskur "kommentater" röltandi upp/niður strikið...Greinilegt að danskurinn er að rifna úr öfund yfir skjótum "heimsyfirráðum" íslendinga..typisk dansk segi ég bara..þeir ég nú líka svo fínt orð yfir svona öfund út í náungann.."JENTELØV". Í framhaldi af allri þessari dönsk/íslensku krísu og í því sambandi áhrif dólgslátanna á íslensku krónuna. Er ekki bara sniðugast að taka upp Evruna?...þá eru íslendingar ekki undir því komnir hvort að einhver aumur blaðamaður á þeim annars öðlings klósettpappír Ekstra bladet fer vitlausu meginn fram úr rúminu á morgnanna. Gengi "pappírseyjupeninga" eru ögn viðkæmara en annarra mun alþjóðlegri gjaldmiðla...Nei ég segi bara sonna?...
Það var svo sem ekki meiningin að snúa pistli dagsins upp í rammpólitískan áróður...segi bara góðar stundir og eins og hún "Skorrý" frænka mín segir..gangið á guðs vegum..Við sjáumst hress á Akureyri..
Over and out..
Húsfreyjan með pólitískt harðlífi..
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.11.2006 | 17:52
Svarthvíta hetjan mín..
Vorum að koma frá ljósmyndaranum..Júlíus minn var myndaður í bak og fyrir, og auðvitað fengu foreldrarnir að vera með....enda með eindæmum myndarlegt fólk hér á ferðinni..múhahahaha..Nei í alvöru talað þá hlakkar mig svooooooona mikið til að ná í myndirnar..Júlíus var alveg að fara á kostum og var við það að rifna úr hlátri við fíflalætin í mömmu sinni..sem og aðrir viðstaddir reyndar líka. Thibaut hafði það að orði að hann hefði ekki ímyndað sér að ég ætti slík hljóð í eigu minni...en viti menn, neyðin kennir naktri..eða eitthvað í þá áttina.
Hver hefði trúað því..bara kominn helgi aftur..og já unbarnasundið er á sínum stað í fyrramálið..svo fer húsmóðirin í það að gera sig fína því annað kvöld heldur Jane vinkona mín upp á 30 ára afmælið sitt..það verður án efa svaka fjör..og svo förum við familien saman í afmæli á sunnudag hjá Charlotte...jessör ekta danskt "boller og lagkage" gerist víst ekki danskara en það...
Hér stigmagnast spennan fyrir Íslandsförina...enda ekki langt í hana..Excellent..
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.11.2006 | 13:08
Áfram Þuríður Arna!!!
Þuríður Arna greindist með illvíga flogaveiki í október 2004 og í kjölfarið fundust æxli í höfði hennar sem á þeim tíma voru greind góðkynja.Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir hefur ekki tekist að vinna bug á meini hennar og nú er svo komið að æxlið er skilgreint sem illkynja og útlit fyrir að frekari meðferðarúræði séu ekki fyrir hendi. Nú ætlum við að leggjast á eitt og sagna fjármunum til að hún og foreldrar hennar geti átt góðar stundir saman.
Tónleikar
Til styrktar og heiðurs Þuríði Örnu Óskarsdóttur í Bústaðarkirkju Miðvikudaginn 8. nóvember kl 20.
Fram koma
Stebbi og Eyfi, Regína Ósk, Garðar Örn Hinriksson, Signý Sæmundsdóttir, Jóhann Friðgeir, Hanna Þóra og Ólöf Inga Guðbrandsdætur.
Ásamt
Guðmundi Sigurðssyni, Vilhelmínu Ólafsdóttur, Matthíasi Baldurssyni og Guðmundi S Sveinssyni
Kynnir verður
Anna Björk Birgisdóttir
Aðgangseyrir 2000 kr
Allt fé sem safnast á tónleikunum rennur óskert til Þuríðar Örnu og fjölskyldu hennar
Ég skora á alla sem vettlingi geta valdið að drífa sig á tónleikana...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.10.2006 | 12:12
Hola...
Nú fer heldur betur að styttast í Íslandsför..og brosið hjá húsfreyjunni á Lærkevej 10 breikkar í hlutfalli við það. Mikið hlakkar mig til að skreppa á klakann, er búin að vera með smá heimþrá undanfarið. Þetta kemur svona í kippum hjá mér og það er venjulega hægt að mæla heimþránna á því hversu mikil íslensk tónlist er spiluð hér á hverjum degi. Það er skemmst frá því að segja að hér er spiluð íslensk tónlist daginn út og inn...og svona til að toppa það skráði ég mig í 14 daga prufuáskrift á tonlist.is. Jessör það er trúlega mjög heppilegt að ég sé búin að tryggja mér miða þann 9.nóv.
Helgin leið hratt og örugglega. Eins og venjulega var ungbarnasund á laugardagsmorguninn. Júlíus er alltaf jafn ánægður með að komast í laugina..það eru læti í drengnum og er aldrei lukkulegri en þegar hann er í upphálds "elementinu". Síðar sama dag smeygði húsfreyjan sér í badmintongallann og spilaði eins og eina liðakeppni....því miðir tapaðist sá leikur 8-5. Það verður þó að fylgja sögunni að húsfreyjan skilaði sigri í hús í einliðaleik..og er bara nokkuð sátt við það. Gærdagurinn fór að mestu í að flytja húsgögn milli hæða og útbúa gestaaðstöðu í kjallaranum. Barnaherbergið var tæmt þannig að nú fer jafnvel að líða að því að Júlíus fari að sofa í eigin herbergi..hmmm..Annars gerðisti sá stórviðburður á laugardagskvöldið að Júlíus Aron reisti sig upp og stóð einn. Hann gerði þetta í rúminu sínum...hann náði góðu taki á rimlunum reisti sig upp á hnén og síðan alla leið upp á fæturnar. Þetta gerði hann auðvitað með tilheyrandi stunum og hljóðum...foreldrarnir fylgdust auðvitað spenntir með og réðu sér ekki fyrir kæti þegar að honum lukkaðis ætlunarverk sitt. Núna er þetta aðalsportið og hann æfir sig grimmt...hann er hvergi banginn og reynir að reisa sig upp við allt...þetta þýðir auðvitað að hér þarf verulega að huga að öryggismálum og að ekki séu lausir hlutir á sveimi...
Annars er vert að benda á fyrir áhugasama að það eru komnar nýjar myndir á barnalandið..skaut nokkrar góðar af honum í gær..
Adios amigos
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.10.2006 | 21:56
Mission completed
Fór til tannlæknis í dag í fyrsta skipti í háa herrans tíð..það er svo langt síðan síðast að ég barasta man ekki hvenær ég fór síðast. Það kom í ljós að ég var með eina holu..og já það þurfti að bora. Ég ákvað að splæsa á mig deyfingu, tilhugsunin um að láta tannlækninn juðast á tanndruslunni með rafdrifinni borvél var meira en ég gat borið. Annars er það merkilegur fjandi þegar maður situr þarna í stólnum..með útglenntan kjaftinn, fullann af bómull og jafnvel eitt eða tvo verkfæri upp í sér að þá finnst flestum tannlæknum það vera kjörið tækifæri til þess að ræða um daginn og veginn. Maður er ekki beint upplagður í stórar samræður undir slíkum kringumstæðum...og jafnvel deyfður líka. Ég hef bara engan áhuga á "smalltalk"akkúrat á meðan er verið að níðast svona á mér..og til að bæta gráu ofan á svart stóð gosbrunnur upp úr mér á meðan háþrýstings græjan spúlaði greyið tönnina. Tannsi fór þó vel með mig í dag svona miðað við aðstæður..tönninn var löguð og deyfingin virkaði líka svona ljómandi vel...reyndar svo vel að ég var slefandi langt frameftir degi...og rúsinan í pylsuendann er svo að reikningurinn var mun lægri en óttast var í fyrstu...þannig að í rauninni er maður er alltaf að græða..
Jessör..læt þetta duga í bili..
Hilsen Ólöf with a slight drewling problem...
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.10.2006 | 13:10
Súper Gella...með súper tennur..
Helgin liðinn og ný vinnuvika tekinn við. Ég fór til hárgreiðsludömunnar á laugardagsmorguninn og fékk pínu meikover..ljósar strípur og nýja klippingu..bara nokkuð ánægð með mig enda ekki hægt annað þegar að hárið kostaði mig fót og handlegg...970 danskar krónur..ég ætla ekki einu sinni að reikna verðið yfir í íslenskar nýkrónur..Ég var með móral allan laugardaginn, allan Sunnudaginn og fór svo að skána um miðjan dag í gær...djíííís.. ég er greinilega í röngum bransa..þvílíkt tímakaup..Jæja það er best að vera ekkert að svekkja sig á þessu..hárið er fínt og ég er viss um að ég gleymi þessum reikningi fljótt þegar ég fæ reikninginn frá tannlækninum en ég er að fara til tannsa á morgunn...ég hef ekki farið til tannlæknis í skammarlega langann tíma þannig að blessaður tannlæknirinn verður ánægður með mig...þ.e.a.s hann getur haldið feiki fín Jól þegar ég verð búin að borga upphæðina sem ég er að búast við fyrir að láta laga kjaftinn á mér..
Annars er lítið héðan að frétta..það sem helst getur talist fréttaefni er að Júlíus Aron er alveg að komast upp á hnén þannig að nú líður ekki á löngu þangað til að hann skríði rétt..þetta eru náttúrulega stórfréttir í þessu húsi.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
20.10.2006 | 19:16
Helgarfrí..
Þá er föstudagur enn og aftur...mér finnst ekki fyndið hvað vikurnar eru fljótar að líða..Annars eru helgarnar alltaf gleðiefni. Hér var vaknað snemma í morgun og arkað í leikfimi. Ég og Júlíus vorum mætt í leikfmina kl. 9.15 hvorki meira né minna, það var alveg hreint ljómandi hressandi að skreppa í tíma og Júlíus skemmti afgreiðsludömunni á meðan, það vill svo skemmtilega til að hún er lærður leikskólakennari og var því ekki í nokkrum vandræðum með að hafa ofan af drengum á meðan ég púlaði..Eftir leikfimina var tekinn einn rúntur í gegnum bæinn og svo var stefnan tekin heim á leið. Annars er ég bara að bíða eftir bóndanum núna...er að keyra heim í þessum töluðu orðum. Hann er búinn að vera viku í Belgíu og það verður ljómandi fínt að fá karlinn heim aftur...er orðin þreytt á því að vera grasekkja..
Annars er mér farið að hlakka mikið til að skreppa á eyrina og 9. nóvember er að nálgast ófluga...í tilefni af því er ég að skreppa í sjæningu á morgun...klukkan áttaþrjátíu sjarp..þá verð ég í klipparastólnum og fer vonandi þaðan nú manneskja...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
19.10.2006 | 07:26
Svart belti..
Taldi júdókennslu vera gíslatöku | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 07:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.10.2006 | 18:56
Ósanngirni..
Það er eiginlega það orð sem er mér efst í huga þessa dagana, mér finnst ósanngjarnt að tendamóðir mín þurfi á ný að takast á við illvígan sjúdóm eftir að hafa sigrað frækilegan sigur fyrir hálfu ári...eða að við héldum....og mér finnst ósanngjarnt að lítil hetja sem hefur barist og barist í langan tíma standi nú frammi fyrir erfiðastu báráttunni á sinni stuttu ævi..hér er ég að tala um hana Þuríði Örnu. Einhvern tímann heyrði ég að Guð leggði ekki meira á okkur en við getum borið....þvílík lygi...ég á erfitt með að sjá hvernig hann getur réttlætt að leggja þessa pínu á lítið barn..og fjölskylduna hennar...
Ég sendi Áslaugu og fjölskyldu hennar allann minn styrk og góða strauma...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.10.2006 | 20:35
Skrýtin vika..
Það er orðið nokkuð síðan ég skrifaði nokkuð hér og það er víst ástæða fyrir því..hér kemur hún..Síðasta mánudag hringdi tengafaðir minn til okkur og sagði okkur þær sorgarfréttir að móðir hans (í frakklandi) lægi fyrir dauðanum og hann myndi leggja af stað til hennar snemma daginn eftir. Thibaut var auðvitað ákveðinn í að fara til ömmu sinnar en ætlaði þó að láta þriðjudaginn líða og bíða frekari frétta..við ákváðum því að rjúka til Köben sl. þriðjudag svo að Thibaut gæti bara hoppað í flug ef svo bæri undir..og ekki minnst vegna þess að móðir hans er því miður aftur veik og fór akkúrat í fyrstu lyfjameðferðina á mánudaginn. Hún var búin að vera hálfslöpp og líða illa þannig að okkur fannst engan veginn hægt að láta hana vera eina á meðan að tengdapabbi var í burtu...við semsagt rukum af stað og það var pakkað frekar mikið þar sem að enginn vissi hvursu lengi við yrðum í burtu...Við náum til Köben og fáum þær góðu fréttir að amma í Frakklandi er að hressast og er ekkert á því að kveðja okkur að svo stöddu og hún hressist öll þegar leið á þriðjudaginn og var orðinn enn betri á miðvikudag. Thibaut ákvað því að fresta Frakklandsferð...og pabbi hans kom aftur heim tveim dögum seinna. Við áttum tvo fína daga með tengdamömmu og svo var brunað heim til Viborgar á fimmtudagskvöld. Anna systir flaut með okkur tilbaka og hún er hérna núna og verður fram á miðvikudag..Thibaut er á námskeiði í Belgíu þessa viku..Mér var reyndar boðið með en ég nennti ekki að leggja 10 tíma keyrslu á Júlíus..þannig að við höfum það bara huggulegt heima í staðinn..
Annars í öðrum fréttum skrapp ég á "djammið" á laugardagskvöldið...búið að standa til lengi..það voru tónleikar hérna í bænum og ég og vinkonur mínar vorum búnar að tryggja okkur miða fyrir löngu síðan..Við hittumst snemma eða klukkan sex, borðuðum saman og svo var farið á koncert klukkan átta. Það var ofsalega gaman og við tjúttuðum heil ósköp..reyndar er skemmst frá því að segja að nýbakaða móðirin í hópnum þ.e.a.s. MOI var orðin alveg uppgefin um miðnættið. Það þarf greinilega að trappa sig upp í svona ústáelsi...ekki hægt að taka þetta með trompi í fyrsta skiptið..Annars skemmti ég mér konunglega...þrátt fyrir að vera farin að geispa fyrr en ég átti von á.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Tenglar
Áhugamálið
Ungviðið
Spakmæli
Af mbl.is
Íþróttir
- Fer ekki þó City verði dæmt niður
- Sjötti leikmaðurinn úr 1. deild til Fram
- Fyrri hálfleikurinn felldi Ísland
- Valsmenn sigldu fram úr í lokin
- HK fór illa með Eyjamenn
- Afturelding heldur sínu striki
- Auðvelt hjá meisturunum gegn botnliðinu
- KA vann fallslaginn
- Ísland tapaði naumlega í Sviss
- Toppliðið tapaði óvænt