25.10.2006 | 21:56
Mission completed
Fór til tannlæknis í dag í fyrsta skipti í háa herrans tíð..það er svo langt síðan síðast að ég barasta man ekki hvenær ég fór síðast. Það kom í ljós að ég var með eina holu..og já það þurfti að bora. Ég ákvað að splæsa á mig deyfingu, tilhugsunin um að láta tannlækninn juðast á tanndruslunni með rafdrifinni borvél var meira en ég gat borið. Annars er það merkilegur fjandi þegar maður situr þarna í stólnum..með útglenntan kjaftinn, fullann af bómull og jafnvel eitt eða tvo verkfæri upp í sér að þá finnst flestum tannlæknum það vera kjörið tækifæri til þess að ræða um daginn og veginn. Maður er ekki beint upplagður í stórar samræður undir slíkum kringumstæðum...og jafnvel deyfður líka. Ég hef bara engan áhuga á "smalltalk"akkúrat á meðan er verið að níðast svona á mér..og til að bæta gráu ofan á svart stóð gosbrunnur upp úr mér á meðan háþrýstings græjan spúlaði greyið tönnina. Tannsi fór þó vel með mig í dag svona miðað við aðstæður..tönninn var löguð og deyfingin virkaði líka svona ljómandi vel...reyndar svo vel að ég var slefandi langt frameftir degi...og rúsinan í pylsuendann er svo að reikningurinn var mun lægri en óttast var í fyrstu...þannig að í rauninni er maður er alltaf að græða..
Jessör..læt þetta duga í bili..
Hilsen Ólöf with a slight drewling problem...
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.