28.3.2008 | 13:02
Bara í stuði..
Já svei mér þá...bara þrjú blogg með stuttu millibili...Húrra fyrir mér. Þá er páskagestirnir farnir..sniff sniff. Ég og Júlíus skutluðumst til Karup í morgun með mömmu og pabba sem voru að leggja í hann til Íslands. Páskarnir runnu ljúflega niður en ég vísa bara í síðustu færslu..it says it all.
Ekki er öll vitleysan ein, var að opna póstinn minn og fékk furðulegt tilboð...eins og kannski margir vinir mínir vita þá er ég með á Facebook og ekkert nema gott um það að segja nema hvað að núna var einhver rugludallur að senda mér póst og vill bjóða mér "Hotties" . Einhver að nafni FADI er semsagt að bjóða mér kvennabúrið sitt...og með póstinum voru 5 nöfn trúlega kvennmenn af miðausturlenskum uppruna. Ég veit ekki hvort ég á að vera uppi með mér...því að ég hélt að maður deildi ekki kvennahópnum sínum með öðrum...ég hef því miður ekkert í skiptum, bara danskann kall..Alla vegana undarlegt tilboð í allastaði..
Annars er verður nóg að starfa um helgina en hann Júlíus minn verður tveggja ára á sunnudaginn. Já tíminn líður hratt og þessi elska verður alltaf stærri og stærri. Auðvitað höldum við upp á daginn og erum nú þegar búin að taka forskot á hátíðarhöldin. Lísbeth dagmamma og hinir strákarnir sem hún passar komu í morgunkaffi í dag og það var mikið fjör eins og gefur að skilja. Föðurfjölskyldan er svo á leiðinni um helgina og verður án efa kát í kotinu þegar að allt fólkið er komið saman...oft er mikið rökrætt enda rennur suðlenskt blóð í þeirra æðum.
Athugasemdir
Nei sko ! Mín farin að skrifa fréttir á fullu - fagna því :)
Óskum Júlíus til hamingju með afmælið !
LoA vinka frá Vancouver
Lína (IP-tala skráð) 30.3.2008 kl. 04:15
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.