Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2007

Jule jule...

Jæja þá er jólaskapið allt að koma...og ég verð að viðurkenna að það hljóp kannski pínu skröggur í mig í síðustu færslu.  Það bætti ekki skapið að Flugherinn er kominn með þá dillu að eiginmaðurinn eigi kannski að fara á námskeið í Usa aftur á næsta ári í þrjá og hálfan mánuð...þannig að síðasta færsla var kannski skrifuð með smá dassi af sjálfsvorkun.  Annars er ég byrjuð að skreyta hér á bæ...ekkert yfirdrifið svosem þar sem að við verðum ekki heima þessi jól.  Meira skraut þýðir bara meiri tiltekt eftir jólin.  Annars er jólapartý í vinnunni um helgina og miðillinn slash stílistinn slash handalesari slash stripparinn mætir hress...hlakka orðið aðeins til að sjá þessa fígúru getur ekki verið annað en góð skemmtun með svona blöndu.  Hann er víst ófeiminn við að segja sínar skoðanir þannig að ég vona ekki að maður verði tekinn of mikið fyrir.  Ég og annar kollegi vorum að ræða þann möguleika að skreppa á hjálpræðisherinn og kaupa einhvern fallegan rósóttan kjól og mæta í honum með óblásið hár og takmarkaðan farða og sjá hvað hann segði....hún kemst því miður ekki og ég er of mikill kjúklingur til þess að gera þetta ein....þannig að það verður sparigallinn.  Er reyndar að vona að ég verði búin að hrista af mér flensuna en ég og Júlíus erum heima í dag...hann er líka stútfullur af hor..við höfum það bara kósy í dag...og kannski hengjum upp það síðasta af jólaskrautinu...

Góðar fréttir..

Þá er búið að tryggja sér miða til Íslands um jólin og litla fjölskyldan í Viborg ætlar enn einu sinni að leggja land undir fót.  Okkur hlakkar mikið til og það verður án efa gaman að koma aftur á heimaslóðir.  Við leggjum í hann þann 19. des og komum heim á ný þann 3. janúar.  Planið er að vera á Akureyri að mestu leyti. 

Annars er allt að komast í fyrra horf eftir erfiðar vikur.  Allir farnir að vinna og Júlíus byrjaður aftur hjá dagmömmu.  Maður er aðeins farin að huga að jólunum og er svei mér þá búin að versla nokkar jólagjafir sem er nú í fyrra fallinu fyrir mig.  Ég verð aldrei þessi súper myndarlega húsmóðir sem er búin að kaupa allar jólagjafir í ágúst á sumarútsölunum og er búin að baka þrjár sortir af smákökum og frysta niður í nóvember. En allavegana þá er ég byrjuð...og er bara ánægð með það...maður verður að vera ánægður með litlu sigrana hérna í lífinu.  Nú jólageðveikin er byrjuð í öllum búðum og duttu nú af mér allar dauðar lýs um síðustu helgi þegar að ég skrapp í Magasín og það var spiluð jólatónlist í öllum kerfum...við erum að tala um 10. nóvember.  Ég er bara nokkuð sátt við þá óskrifuðu reglu að maður á ekki að spila jólatónlist fyrr en 1. des....ég verð komin með ræpu ef ég þarf að hlusta á "Last christmas" í tvo mánuði.  Danir eru þegar byrjaðir að halda Julefrokost og eru tveir á dagskránni hjá mér.  Ég er reyndar enginn stór aðdáandi Julefrokosta.  Þessar blessuðu samkundur eru yfirleitt makalausar og taka mest allann daginn.  Danir líta líka á þessar skemmtanir sem einhverskonar afsökun fyrir því að drekka sig gjörsamlega út úr heiminum ( og trúið mér það er vel hægt ef partýið byrjar kl. 14.00) og gjarnan skreppa á klósettið með vinnufélaga ( og þá á ég ekki við að sinna hinu hefðbundna kalli náttúrunnar).  Ég á pínu lítið erfitt með að sjá hvernig að slík á að bæta vinnumóralinn og þjappi samstarfsfólki saman.....nema þá þessa einu kvöldstund.  Ég verð að taka fram að þar sem að á mínum vinnustað eru að mestu kvenkyns starfsmenn þá er hættan á vafasömum klósettferðum í lágmarki....Mér hlakkar reyndar aðeins til skemmtuninnar í minni vinnu þar sem að búið er að leigja skemmtikraft.  Þekktur miðill og stílisti ætlar að skemmta okkur og það er skemmtun í lagi.


Af mér og mínum..

 Að baki er afar erfið vika en elskuleg tengdamóðir mín Inga A. Guilbert lést þann 4 nóvember sl., 59 ára að aldri.  Hún barðist hetjulega við krabbamein í tvö ár en sjúkdómurinn hafði því miður betur að lokum.  Blessuð sé minning hennar.


Höfundur

Ólöf Guðrún Ólafsdóttir
Ólöf  Guðrún Ólafsdóttir
Akureyringur í Viborg

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband